SKILMÁLAR & MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA

NEÐANGREINDIR SKILMÁLAR GILDA FYRIR
VEFVERSLUN ELINBORG.IS.

Vinsamlegast kynntu þér þá vandlega áður en þú pantar vörur á www.elinborg.is

Elinborg.is áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara.
Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.

Hægt er að skila eða skipta vörum innan 14.daga gegn framvísun greiðslukvittunar.

Vörum er innan tímaramma hægt að skila eða skipta í aðra vöru eða Inneign.

Vörur fást ekki endurgreiddar. 

Þegar þú verslar á www.elinborg.is færð þú vörurnar/pöntun þina senda með Íslandspósti. 

Hver sending kostar 1500kr.

Þú getur nálgast pakkann þinn á næsta pósthúsi eftir 1-3 virka daga
(athugið að á mörgum stöðum úti á landi er pakkinn keyrður beint heim þar sem pósthús er ekki nálægt).

Við leggjum metnað í að varan berist til þín í fullkomnu ásigkomulagi. Þess vegna ábyrgjumst við vandaða pökkun og frágang vörunnar áður en hún fer frá okkur.

ELINBORG EHF HLÝTIR LÖGUM NÚMER 77/2000 UM PERSÓNUVERND OG MEÐFERÐ PERSÓNUUPPLÝSINGA.

Elinborg.is leggur metnað í trúnað við viðskiptavini sína.
Gögn sem innihalda persónuupplýsingar eru ekki látin þriðja aðila í té.

 

Auk persónuupplýsinga sem þú gefur upp söfnum við líka upplýsingum sjálfkrafa með vefkökum
(vefkökur eru skrár sem við sendum til tölvunnar þinnar). Við notum vefkökur aðallega til að gera heimasíðuna ánægjulegri í notkun. Þær sýna okkur líka hvað notendur skoða á síðunni okkar sem auðveldar okkur að gera hana enn þægilegri.

Stundum þurfum við að fá til liðs við okkur utanaðkomandi aðila sem hjálpa okkur við að veita ákveðna þjónustu. Í sumum tilvikum þurfum við að deila með þessum fyrirtækjum upplýsingum sem þau þurfa til að geta veitt okkur og á endanum viðskiptavinum okkar, þjónustu. Við þurfum t.d. að láta flutningsaðila fá heimilisfangið þitt svo að hann geti sent vörurnar þínar heim til þín.

Athugið: Greiðsluupplýsingar eru ætíð sendar um örugga greiðslusíðu sem hlotið hefur vottun.